Í stuttu
máli:
Ef óskað er skilnaðar, þarf að panta
viðtal í síma 569-2400 eða með tölvupósti á netfangið sifja@syslumenn.is
Hægt er að veita lögskilnað án undangengins
skilnaðar að borði og sæng eftir það viðtal ef:
- Grundvöllur lögskilnaðar er fyrir hendi og lögskilnaðarkrafa samþykkt, sbr.
hér að neðan.
-
Hjónin leggja fram:
-
vottorð prests um árangurslausa sáttatilraun, ef barn er á heimilinu.
-
skriflegan fjárskiptasamning sin á milli eða úrskurð um opinber skipti (ef
eignir eru).
-Hjónin
lýsa yfir í viðtalinu:
-
samkomulagi um lögheimili barns eða leggja fram stefnu í forsjármáli.
-
samkomulagi um meðlagsgreiðslur, eða gera kröfu um úrskurð ágreiningsmáli.
- samkomulagi um lífeyri.
Greiðsla fyrir leyfisbréf til skilnaðar að
borði og sæng kr. 3.850 er innt af hendi áður en viðtalið hefst. Tekið er
við debetkortum.
Leyfisbréf til skilnaðar er sent báðum aðilum í
pósti, að jafnaði innan 7 daga frá viðtalinu.
Ef aðeins annað hjóna mætir til viðtals, er
hitt boðað skriflega til sýslumanns.
Ef aðeins hluta framangreindra atriða er ráðið
til lykta, verður framhald á málinu eftir atvikum.
_______________________________________
Annað hjóna getur krafist lögskilnaðar án þess
að skilnaður að borði og sæng hafi áður verið veittur ef tiltekin atvik eru
fyrir hendi. Þar getur verið um að ræða hjúskaparbrot, tvíkvæni, líkamsárás,
kynferðisbrot (sem bitnar á hinu hjóna eða barni sem býr hjá þeim) eða atferli
sem veldur alvarlegum ótta um líkamsárás eða kynferðisbrot. Ef annað hjóna
gerir sig sekt um eitthvað af framangreindu getur hitt hjóna krafist
lögskilnaðar á þeim grundvelli. Einnig getur hvort um sig krafist lögskilnaðar
ef hjónin hafa slitið samvistir vegna ósamlyndis og samvistaslit hafa staðið í
tvö ár hið skemmsta.
Nauðsynlegt er að panta viðtalstíma við
fulltrúa í sifja- og skiptadeild til að setja fram ósk um lögskilnað. Nokkur
bið er eftir tíma. Hjónin geta mætt saman til viðtals en einnig geta þau komið
hvort í sínu lagi. Í viðtalinu eru kröfur og afstaða hjónanna færð í gerðabók
sýslumanns og þeim leiðbeint um réttarstöðu sína samkvæmt hjúskaparlögum nr. 31/1993 og barnalögum 76/2003 eftir
atvikum.
Til að sýslumaður geti veitt lögskilnað á
grundvelli einhverra ofangreindra atvika þarf sá sem krafa beinist að, að
fallast á lögskilnaðarkröfu á þeim grundvelli. Einnig þurfa hjónin að vera
sammála um að lögskilnaðar skuli leita hjá sýslumanni. Komi í ljós að sá sem
krafa beinist að samþykkir hana ekki getur sýslumaður ekki veitt
lögskilnaðarleyfi. Er þá, samkvæmt hjúskaparlögum, hægt að leita til dómstóla
með kröfuna.
Neðangreindum atriðum þarf að ráða til lykta
áður en skilnaðarleyfi er veitt:
1.
Sáttatilraun. Ef börn hjónanna, annars eða
beggja, undir 18 ára aldri, búa á heimili hjónanna þarf að leggja fram vottorð
prests (eða forstöðumanns trúfélags) um árangurslausa sáttatilraun. Vottorðið
má að jafnaði ekki vera eldra en 6 mánaða. Ef hjón eru utan trúfélaga eða hvort
í sínu trúfélaginu, þá leitar fulltrúi sýslumanns um sættir.
2.
Lögheimili barns og meðlag. Foreldrar í
hjónabandi fara sameiginlega með forsjá barns eftir skilnað, nema annað sé
ákveðið.
Áður en lögskilnaður er veittur þurfa
foreldrar að ákveða hjá hvoru þeirra sameiginlegt barn þeirra yngra en 18 ára á
að hafa lögheimili eftir skilnaðinn og þar með að jafnaði fasta búsetu. Einnig
þarf að ákvarða meðlag með barni. Ef hjón eru sammála um lögheimili og meðlag
er samningur þeirra bókaður í gerðabók sýslumanns til undirskriftar.
Foreldrar geta samið um að annað þeirra fari
eitt með forsjá eftir skilnaðinn, þ. e. að forsjáin verði ekki sameiginleg.
Foreldri getur krafist þess í viðtali vegna skilnaðar að hafa eitt forsjá
barns, þ.e. að forsjá verði ekki sameiginleg.
Ef fram kemur við meðferð skilnaðarmáls að
hjón greinir á um forsjá, um hvar barn á að hafa lögheimili, um umgengni eða
önnur grundvallaratriði varðandi barn, er foreldrum boðin sáttameðferð
samkvæmt 33. gr. a barnalaga, einnig getur sýslumaður boðið foreldrum
ráðgjöf sérfræðings í málefnum barna samkvæmt 33. gr. barnalaga. Þjónusta þessi
er án endurgjalds fyrir aðila.
Ef foreldrar ná ekki samkomulagi um forsjá eða
lögheimili verða þeir að höfða forsjármál fyrir dómstóli til að fá niðurstöðu
þess ágreiningsmáls.
Lögskilnaður verður ekki veittur nema
annaðhvort hafi verið gerður samningur um lögheimili barns eða höfðað
forsjármál fyrir dómstóli. Þegar leyst er úr forsjárágreiningi fyrir dómstólum,
getur dómarinn einnig, að kröfu aðila, ákvarðað meðlagsgreiðslur og umgengni.
Komi í ljós við meðferð skilnaðarmáls að
foreldra greinir á um meðlagsgreiðslur, getur sýslumaður úrskurðað um slíkan
ágreining, að tilteknum skilyrðum uppfylltum.
3.
Umgengni. Við skilnað hvílir sú skylda á báðum
foreldrum að grípa til þeirra ráðstafana sem við verður komið til að tryggja
rétt barns til að umgangast með reglubundnum hætti það foreldri sitt sem það
býr ekki hjá. Foreldrar geta óskað staðfestingar sýslumanns á samningi sínum um
umgengni. Komi fram ágreiningur foreldra um umgengni, geta foreldrar farið fram
á úrskurð sýslumanns um hana. Eyðublað vegna samnings um umgengni eða kröfu um
úrskurð um umgengni fæst hjá sýslumanni og á heimasíðu embættisins.
4.
Fjárskipti. Hjónin þurfa að gera með sér
skriflegan fjárskiptasamning og leggja hann fram og staðfesta við fyrirtöku
málsins hjá fulltrúa sýslumanns. Náist ekki samkomulag um fjárskiptin þarf
annaðhvort hjóna að óska eftir því við héraðsdóm að opinber skipti fari fram
til fjárslita. Ekki er veittur lögskilnaður fyrr en annaðhvort liggur fyrir
samningur um fjárskiptin eða úrskurður héraðsdóms um að opinber skipti skuli
fara fram. Ef bæði hjónin eru eignalaus er yfirlýsing þeirra þar að lútandi
færð í gerðabók sýslumanns og þarf þá ekki að leggja fram fjárskiptasamning.
5.
Framfærsla hjóna. Við lögskilnað þarf að taka
afstöðu til þess hvort annað hjóna skuli greiða hinu framfærslueyri eða
lífeyri. Gagnkvæm framfærsluskylda milli hjóna er við lýði allt fram til þess
að lögskilnaður er veittur. Eftir lögskilnað er verður öðru hjóna ekki gert að
greiða hinu lífeyri nema alveg sérstaklega standi á. Komi í ljós ágreiningur um
greiðslu framfærslueyris eða lífeyris úrskurðar sýslumaður í því máli.
6.
Greiðsla. Lögskilnaður kostar kr. 4.700 og er
greiðslan innt af hendi við fyrstu komu til embættisins vegna málsins. Tekið er
við debetkortum.
___________________________________________
Leyfisbréf til lögskilnaðar er póstsent til
aðila málsins. Einnig sendir sýslumaður til Þjóðskrár Íslands staðfestingu á
skilnaðinum, heimilisföngum aðila barna. Eru þá lögheimili aðila og barna
þeirra skráð í samræmi við þær upplýsingar.
Í leyfisbréfi til lögskilnaðar er m. a. getið
um forsjá, lögheimili og meðlagsgreiðslur með barni. Rétthafi meðlagsgreiðslna
getur snúið sér með leyfisbréfið til Tryggingastofnunar ríkisins og óskað
greiðslu á (einföldu)meðlagi. Sér þá Innheimtustofnun sveitarfélaga um
innheimtu meðlagsins hjá greiðanda þess. Sjá nánar vegvísi
Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslu meðlags og upplýsingar á vef Innheimtustofnunar sveitarfélaga.
Hjúskaparlög 31/1993.
Barnalög 76/2003.
Upplýsingar um
skilnaði á vef sýslumanna, www.syslumenn.is.
Sjá einnig:
Lögskilnaður
eftir skilnað að borði og sæng.
Skilnaður að
borði og sæng.
Forsjá.
Lögheimili.
Meðlag.
Sérstakt
framlag til framfærslu.
Framlag vegna
menntunar.
Umgengni.
Dagsektir.
Utanlandsferð
barns.
Sáttameðferð.