Lögskilnaður eftir skiln. að borði og sæng

 

Í stuttu máli:

-Hjón sem hafa verið skilin að borði og sæng í sex mánuði eða lengur og vilja fá lögskilnað með sömu skilmálum og giltu við skilnað að borði og sæng, geta óskað eftir lögskilnaði með því að fylla út eyðublað fyrir beiðni um lögskilnað og afhenda sýslumanni.

 

-Erindinu á að beina til sýslumanns í því umdæmi sem hjónin búa. Ef þau búa sitt í hvoru umdæminu hafa þau val um til hvors sýslumannsins er leitað.

 

-Frumrit eða staðfest ljósrit af leyfi til skilnaðar að borði og sæng eða endurrit dóms um skilnað að borði og sæng skal fylgja með beiðni um lögskilnað. Greiðsla fyrir lögskilnaðarleyfi þarf einnig að fylgja með.

 

-Það er hægt er að bera fram ósk um lögskilnað í viðtali við sýslumann eða fulltrúa hans, í stað þess að nota umsóknareyðublaðið.

 

-Sýslumaður getur ákveðið að kalla aðila málsins til viðtals, telji hann það nauðsynlegt.

 

-Hjón sem vilja lögskilnað, en vilja breyta skilnaðarskilmálunum frá því sem ákveðið var við skilnað að borði og sæng, nota ekki umsóknareyðublaðið, heldur óska lögskilnaðar í viðtali hjá fulltrúa sýslumanns.

_______________________________________________

 

Hjón sem hafa verið skilin að borði og sæng í sex mánuði eða meira og eru sammála um að óska eftir lögskilnaði geta óskað eftir slíkum skilnaði hjá sýslumanni, sbr. 1. mgr. 36. gr. hjúskaparlaga nr. 31 frá 1993. Það þurfa að vera liðnir sex mánuðir eða meira, frá því að leyfisbréf til skilnaðar að borði og sæng er dagsett þegar beiðni um lögskilnað er lögð fram.

 

Ef að hjónin eru ekki sammála um að óska lögskilnaðar eftir sex mánuði, getur lögskilnaður ekki orðið að svo stöddu. Fyrst eftir að hjónin hafa verið skilin að borði og sæng í 12 mánuði eða meira getur annar aðilinn knúið fram lögskilnað, sbr. 2. mgr. 36. gr. hjúskaparlaga. Ef hjónin eru ósammála um að leita lögskilnaðar og liðnir eru 12 mánuðir frá skilnaði að borði og sæng, er ekki hægt að veita lögskilnað hjá sýslumanni, en hægt er að höfða dómsmál fyrir hérasðdómi til að fá lögskilnaði veittan.

 

Það eru ekki takmörk fyrir því hvað hjón geta verið lengi skilin að borði og sæng. Lögskilnaður eftir skilnað að borði og sæng er ekki veittur sjálfkrafa, það þarf að sækja um hann.

 

Hægt er að biðja um lögskilnað á eyðublaði sem sýslumenn láta í té, þegar hjón eru sammála um að óska lögskilnaðar með sömu skilnaðarskilmálum og giltu við skilnað að borði og sæng. Ef hjónin vilja víkja frá þeim skilmálum er ósk um lögskilnað borin upp í viðtali við sýslumann eða fulltrúa hans. Viðtalstíma þarf að bóka fyrirfram.

 

Hjón geta alltaf valið að bera upp ósk um lögskilnað í viðtali við fulltrúa sýslumanns, í stað þess að nota umsóknareyðublaðið. Í viðtalinu er afstaða hjónanna færð í gerðabók sýslumanns og þeim leiðbeint um réttarstöðu sína samkvæmt hjúskaparlögum og barnalögum eftir atvikum.

 

Hjónin þurfa að svara því á eyðublaðinu, hvort þau hafa búið saman eftir skilnað að borði og sæng. Ef hjón taka upp sambúð að nýju eftir skilnað að borði og sæng, eða hafa aldrei hætt að búa saman eftir veitingu skilnaðar að borði og sæng, geta þau ekki fengið lögskilnað, þar sem réttaráhrif skilnaðar að borði og sæng eru þá fallin niður, sbr. 35. gr. hjúskaparlaga.

 

Þeir skilnaðarskilmálar (forsjá, lögheimili og meðlag vegna barns/barna, fjárskipti og lífeyrir) sem hjón hafa komið sér saman um eða ákveðnir hafa verið með öðrum hætti í tilefni skilnaðar að borði og sæng skulu einnig gilda eftir að lögskilnaður er veittur, nema annars hafi verið getið þegar skilnaður að borði og sæng var veittur.

 

Ef fram kemur við meðferð skilnaðarmáls að hjón greinir á um forsjá, um hvar barn á að hafa lögheimili, um umgengni eða önnur grundvallaratriði varðandi barn, er foreldrum boðin sáttameðferð samkvæmt 33. gr. a barnalaga, einnig getur sýslumaður boðið foreldrum ráðgjöf sérfræðings í málefnum barna samkvæmt 33. gr. barnalaga. Þjónusta þessi er án endurgjalds fyrir aðila.


Sýslumaður gefur út leyfisbréf til lögskilnaðar, til staðfestingar á að lögskilnaður hafi verið veittur. Við útgáfu leyfisbréfsins er hjónabandinu lokið. Útgáfa leyfisbréfsins verður ekki kærð til æðra stjórnvalds.

 

Í leyfisbréfi til lögskilnaðar er m.a. getið um forsjá barna, lögheimili og meðlagsgreiðslur. Móttakandi meðlags getur snúið sér með leyfisbréfið til Tryggingastofnunar ríkisins og óskað eftir að fá meðlagið greitt. Leyfisbréf til lögskilnaðar er póstsent til aðila málsins. Einnig sendir sýslumaður Þjóðskrá Íslands staðfestingu á skilnaðinum, heimilisföngum aðila og barna. Eru þá lögheimili aðila og barna þeirra skráð í samræmi við þær upplýsingar.

 

 

Greiðsla fyrir leyfisbréfið er innt af hendi hjá sýslumanni þegar beiðnin er lögð fram. Tekið er við debetkortum, en ekki kreditkortum. Hver og einn sýslumaður gefur upplýsingar um bankareikning og kennitölu ef óskað er eftir að greiða með innborgun á reikning. Þessar upplýsingar má einnig nálgast á vef sýslumanna. Sjá nánar vegvísi Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslu meðlags og upplýsingar á vef Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

 

Hjúskaparlög 31/1993.

Barnalög 76/2003.

 

Vefur sýslumanna:  http://www.syslumenn.is/

 

Sjá einnig:

Lögskilnaður án undanfarandi skilnaðar að borði og sæng.

Skilnaður að borði og sæng.

Forsjá.

Lögheimili.

Meðlag.

Sérstakt framlag til framfærslu.

Framlag vegna menntunar.

Umgengni.

Dagsektir.

Utanlandsferð barns.

Sáttameðferð.

.