Skilnaður að borði og sæng

 

Í stuttu máli:

 

Ef óskað er skilnaðar, þarf að panta viðtal í síma 569-2400 eða með tölvupósti á netfangið sifja@syslumenn.is.

 

Hægt er að veita skilnað að borði og sæng eftir það viðtal ef:

         -Hjónin lýsa sig sammála um að fá skilnað að borði og sæng.

         -Hjónin leggja fram:

               -vottorð prests um árangurslausa sáttatilraun, ef barn er á heimilinu.

               -skriflegan fjárskiptasamning sín á milli eða úrskurð um opinber skipti (ef eignir eru).

         -Hjónin lýsa yfir í viðtalinu:

               -samkomulagi um forsjá/lögheimili barns eða leggja fram stefnu í forsjármáli/lögheimilismáli.

               -samkomulagi um meðlagsgreiðslur, eða gera kröfu um úrskurð í ágreiningsmáli.

               -samkomulagi um lífeyri.

 

Greiðsla fyrir leyfisbréf til skilnaðar að borði og sæng kr. 3.850 er innt af hendi áður en viðtalið hefst.   Tekið er við debetkortum.  

 

Leyfisbréf til skilnaðar er sent báðum aðilum í pósti, að jafnaði innan 7 daga frá viðtalinu.  

 

Ef aðeins annað hjóna mætir til viðtals, er hitt boðað skriflega til sýslumanns.  

 

Ef aðeins hluta framangreindra atriða er ráðið til lykta, verður framhald á málinu eftir atvikum.

__________________________________

 

Hjón geta fengið skilnað að borði og sæng hjá sýslumanni ef þau eru sammála um að óska þess eða annað samþykkir kröfu hins um skilnað að borði og sæng hjá sýslumanni.   Nauðsynlegt er að panta viðtal við lögfræðing í sifja- og skiptadeild til að setja fram ósk um skilnað að borði og sæng.   Nokkur bið er eftir tíma. Hjónin geta mætt saman til viðtals en einnig geta þau komið hvort í sínu lagi. Í viðtalinu eru kröfur og afstaða hjónanna færð í gerðabók sýslumanns til undirskriftar og hjónunum leiðbeint um réttarstöðu sína samkvæmt hjúskaparlögum nr 31/1993  og barnalögum nr 76/2003 eftir atvikum.

  

Komi í ljós að annað hjóna vill ekki skilnað að borði og sæng, getur sýslumaður ekki veitt skilnaðarleyfi. Sá sem óskar skilnaðar að borði og sæng, gegn vilja maka síns, getur leitað til dómstóla með þá kröfu, en fram kemur í hjúskaparlögum að maki sem ekki telur sig geta haldið áfram hjúskap, eigi rétt á skilnaði að borði og sæng fyrir dómstólum.

 

Neðangreindum atriðum þarf að ráða til lykta áður en skilnaðarleyfi er veitt:

 

1.   Sáttatilraun.   Ef börn hjónanna, annars eða beggja, undir 18 ára aldri, búa á heimili hjónanna þarf að leggja fram vottorð prests (eða forstöðumanns trúfélags) um árangurslausa sáttatilraun.   Vottorðið má að jafnaði ekki vera eldra en 6 mánaða.   Ef hjón eru utan trúfélaga eða hvort í sínu trúfélaginu, þá leitar fulltrúi sýslumanns um sættir.

 

2.   Lögheimili barns og meðlag.  Foreldrar í hjónabandi fara sameiginlega með forsjá barns eftir skilnað að borði og sæng, nema annað sé ákveðið.

   

Áður en skilnaður að borði og sæng er veittur þurfa foreldrar að ákveða hjá hvoru þeirra sameiginlegt barn þeirra yngra en 18 ára á að hafa lögheimili eftir skilnaðinn og þar með að jafnaði fasta búsetu.   Einnig þarf að ákvarða meðlag með barni. Ef hjón eru sammála um lögheimili og meðlag er samningur þeirra bókaður í gerðabók sýslumanns til undirskriftar.

  

Foreldrar geta samið um að annað þeirra fari eitt með forsjá eftir skilnaðinn, þ. e. að forsjáin verði ekki sameiginleg.   Foreldri getur krafist þess í viðtali vegna skilnaðar að hafa eitt forsjá barns, þ.e. að forsjá verði ekki sameiginleg.  

 

Ef fram kemur við meðferð skilnaðarmáls að hjón greinir á um forsjá, um hvar barn á að hafa lögheimili, um umgengni eða önnur grundvallaratriði varðandi barn, getur sýslumaður boðið foreldrum ráðgjöf sérfræðings samkvæmt 33. gr. barnalaga eða sáttameðferð samkvæmt 33. gr. a barnalaga. Þjónustan er án endurgjalds fyrir aðila.

Ef foreldrar ná ekki samkomulagi um forsjá eða lögheimili verður annað hvort þeirra að höfða dómsmál til að fá niðurstöðu þess ágreiningsmáls.  

 

Skilnaður að borði og sæng verður ekki veittur nema annaðhvort hafi verið gerður samningur um forsjá/lögheimili barns eða höfðað dómsmál til að skera úr ágreiningi þar um. Þegar leyst er úr forsjár- eða lögheimiliságreiningi fyrir dómstólum, getur dómarinn einnig, að kröfu aðila, dæmt um meðlag og umgengni.

 

Komi í ljós við meðferð skilnaðarmáls að foreldra greinir á um meðlag, getur sýslumaður úrskurðað um slíkan ágreining, að tilteknum skilyrðum uppfylltum.  

 

3.   Umgengni.   Við skilnað hvílir sú skylda á báðum foreldrum að grípa til þeirra ráðstafana sem við verður komið til að tryggja rétt barns til að umgangast með reglubundnum hætti það foreldri sitt sem það býr ekki hjá.  

 

Foreldrar geta óskað staðfestingar sýslumanns á samningi sínum um umgengni.   Komi fram ágreiningur foreldra um umgengni, geta foreldrar farið fram á úrskurð sýslumanns um hana.   Eyðublað vegna samnings um umgengni eða kröfu um úrskurð um umgengni fæst hjá sýslumanni og á heimasíðu embættisins.

 

4.   Fjárskipti.   Hjónin þurfa að gera með sér skriflegan fjárskiptasamning, leggja hann fram og staðfesta við fyritöku málsins hjá fulltrúa sýslumanns.   Náist ekki samkomulag um fjárskiptin þarf annaðhvort hjóna að óska eftir því við héraðsdóm að opinber skipti fari fram til fjárslita milli þeirra. Ekki er veittur skilnaður að borði og sæng fyrr en að annaðhvort liggur fyrir samningur um fjárskiptin eða úrskurður héraðsdóms um að opinber skipti skuli fara fram. Ef bæði hjónin eru eignalaus er yfirlýsing þeirra þar að lútandi færð í gerðabók sýslumanns og þarf þá ekki að leggja fram fjárskiptasamning.

 

5. Framfærsla hjóna.  Hjón eru framfærsluskyld hvort við annað og við skilnað að borði og sæng þarf að taka afstöðu til þess hvort annað hjóna skuli greiða hinu framfærslueyri eða lífeyri, enda er hin gagnkvæma framfærsluskylda milli hjónanna við lýði allt fram til þess að lögskilnaður er veittur.   Eftir lögskilnað verður öðru hjóna ekki gert að greiða lífeyri með hinu nema alveg sérstaklega standi á.   Komi í ljós ágreiningur um greiðslu framfærslueyris eða lífeyris úrskurðar sýslumaður í því máli.

 

6. Greiðsla.   Skilnaður að borði og sæng kostar kr. 3.850 og er greiðslan innt af hendi við fyrstu komu til embættisins vegna málsins.   Tekið er við debetkortum.

_______________________________

 

Leyfisbréf til skilnaðar að borði og sæng er póstsent til aðila málsins.   Einnig sendir sýslumaður Þjóðskrá Íslands staðfestingu á skilnaðinum og eru þá lögheimili aðila og barna þeirra skráð í þjóðskrá í samræmi við þær upplýsingar.

 

Hjónin geta síðar óskað eftir lögskilnaði á grundvelli undanfarandi skilnaðar að borði og sæng, sjá nánar undir kafla um lögskilnað. Leyfisbréf til skilnaðar að borði og sæng veitir hvorugum aðila rétt til að ganga í hjónaband aða nýju.   Skilnaður að borði og sæng fellur niður ef hjónin taka á ný upp sambúð.

 

Í leyfisbréfi til skilnaðar að borði og sæng er m. a. getið um forsjá, lögheimili og meðlagsgreiðslur.  Rétthafi meðlagsgreiðslna getur snúið sér með leyfisbréfið til Tryggingastofnunar ríkisins og óskað þar greiðslu á (einföldu)meðlagi. Sér þá Innheimtustofnun sveitarfélaga um innheimtu meðlagsins hjá greiðanda þess. Sjá nánar vegvísi Tryggingastofnunar ríkisins um greiðslu meðlags og upplýsingar á vef Innheimtustofnunar sveitarfélaga.

 

Upplýsingar um skilnað að borði og sæng á vef sýslumanna, www.syslumenn.is.


Sjá einnig:

Lögskilnaður eftir skilnað að borði og sæng.

Lögskilnaður án undanfarandi skilnaðar að borði og sæng.

Forsjá.

Lögheimili.

Meðlag.

Sérstakt framlag til framfærslu.

Framlag vegna menntunar.

Umgengni.

Dagsektir.

Sáttameðferð.

Utanlandsferð barns.